Frakkar elda gjarnan pottrétti og það eru til margar útgáfur af kjúklingapottréttum „að hætti ömmu“ eða Poulet en Cocotte „grand-mére“. Hér er ein klassísk útgáfa með hrísgrjónum.
- 1 kjúklingur, bútaður niður í bita
- 50 g beikon eða pancetta, skorið í bita
- 1 laukur, saxaður
- 3-4 hvítlauksgeirar, fínsaxaðir
- ferskar kryddjurtir, t.d. rósmarín og estragon (það er líka hægt að nota þurrkað krydd)
- 200 g sveppir, t.d. kastaníusveppir, niðursneittir
- 3 dl þurrt hvítvín
- 1 tsk kjúklingakraftur
- 1 lárviðarlauf
- 3 dl hrísgrjón
- olía
- salt og pipar
Byrjið á því að hita olíu í þykkum potti, helst góðum pottjárnspotti. Mýkið beikon, bætið við lauk og mýkið. Setjið kjúklingabitana út í og brúnið. Bætið við sveppunum, kryddjurtum og hvítlauknum og steikið áfram í nokkrar mínútur. Hellið hvítvíni út í og leyfið suðu að koma upp. Bætið lárviðarlaufi og kjúklingakrafti út í.
Setjið í ofn og eldið við 200 gráður undir loki í um 30 mínútur. Bætið hrísgrjónunum út í og vökva ef þarf og eldið áfram án loks þar til að grjónin eru fullsoðin. Takið lárviðarlaufið úr. Látið standa í nokkrar mínútur og berið fram.
Með þessu gott suðurfranskt rauðvín, t.d. Cotes-du-Rhone.
Fleiri klassíska franska rétti finnið þið með því að smella hér.