Tommasi Pinot Grigio Le Rosse 2013

Pinot Grigio er ekki ein af hinum hefðbundnu þrúgum Valpolicella-héraðsins í Veneto á Ítalíu og eru vín úr henni þaðan því flokkuð sem IGT. Það á við um þetta athyglisverða hvítvín sem eru einnar ekru vín frá Valpolicella Classico svæðinu.

Fallega gult, angan tær, hitabeltisávextir, sítrusbörkur, ferskjur, perur, örlítill vottur af apríkósum. Ferskt og þægilegt í munni, góð sýra, vottur af krydduðum ávexti.

2.499 krónur. Frábær kaup.

Deila.