Gavi di Gavi eru hvítvín frá Piemont í norðausturhluta á Ítalíu frá svæði í kringum þorpið Gavi. Þrúgan heitir Cortese og vínin eru því líka stundum nefnd Cortese di Gavi.
Gavi vínin eru þekkt fyrir ferskleika sinn og þeirra ber að njóta meðan að þau eru sem yngst. Þetta Gavi-vín frá Fontanafredda hefur milda angan þar sem hvít blóm, ferskjur og sítrus eru ríkjandi. Létt, sýrumikið og ferskt í munni. Fínn fordrykkur.
2.495 krónur.