Santa Alvara er eitt af vínunum frá víngerðinni Lapostolle í Chile sem er í eigu sömu frönsku fjölskyldu og Grand Marnier.
Nokkuð dökkt, angan af þroskuðum dökkum berjaávexti, kirsuber, brómber, berjabaka, smá brenndur sykur. Þétt, fókuserað, tannískt. Ágætt matarvín.
1.699 krónur. Góð kaup. Hálf auka stjarna fyrir hlutfall verðs og gæða.