Montresor Capitel Della Crosara 2011

Capitel della Crosara frá Montresor er vín frá Veneto sem flokkast sem Valpolicella Ripasso en það er vínstíll sem byggir á því að hrat úr Amarone-víngerð (þar sem notaðar eru þurrkaðar þrúgur) er látið gerjast með vínleginum. Þetta er einnar ekru vín og Montresor-fjölskyldan hefur ræktað vín á þessum slóðum frá sautjándu öld.

Djúpur, sæturog kryddaður kirsuberja ávöxtur, blýantsydd, leður vanillubúðingur, eik. Þurrt í munni, ávöxturinn hefur góða dýpt, þarna er reykur, eik, fín fylling og flottur tannískur strúktúr. .

2.495 krónur. Frábær kaup á því verði.

Deila.