Domaine de la Baume er vínhús í Beziers Languedoc í Suður-Frakklandi sem á sér um 200 ára sögu. Þetta rauðvín er 100% Syrah í alþjóðlegum og flottum stíl.
Mjög dökkt, heitt sólríkt og kröftugt í nefi, sólber, mjög þroskuð sólber, piprað, kryddað, fjólur. Mjög þykkt, mjúkt með þéttum og fínum tannínum, sólbökuðum ávexti. Enn eitt hörkuvínið úr franska suðrinu sem ratar hingað til lands. Þolir vel kröftugan mat og þá sætu sem gjarnan fylgir íslenskum hátíðarmat.
2.399 krónur. Frábær kaup og fær hálfa auka stjörnu fyrir hlutfall verðs og gæða.