Alamos Merlot 2013

Alamos er lína frá argentínska framleiðandanum Catena sem er aðeins ódýrari en þau vín sem seld eru undir nafninu Catena og Catena Zapata. Engu að síður yfirleitt frábær vín fyrir verð, enda Catena einn fremsti framleiðandi Argentínu.

Dökkt, heitt, sólríkt. Ávöxturinn svolítið bakaður, allt að því þurkkaður, plómur, sveskhjur og rúsínur, góð dýpt og þægilegur sætur ávöxtur í munni.

2.248 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.