Domaine de la Baume Les Maries Sauvignon Blanc 2013

Við höfum nýlega fjallað um rauðvín frá Domaine de la Baume og þetta hvítvín frá þessu suður-franska vínhúsi er ekki síður athyglistvert. Sauvignon Blanc er ekki beint suður-frönsk þrúga en hérna nær hún merkilega miklu ferskleika, hún er grösug, krydduð, nokkuð míneralísk og blómakennd. Athyglisvert vín.

2.399 krónur. Frábær kaup.

Deila.