Shiraz-þrúgan er vissulega frönsk að uppruna en það má líka segja að hún sér orðið eitt helsta tákn ástralskrar víngerðar. Eru vínframleiðendur víða um heim meira að segja farnir að merkja vín sín Shiraz til marks um að þeir séu að sækja í ástralska stílinn en ekki hinn franska Syrah-stíl.
Bin 555 er mildur og þægilegur ástralskur Shiraz, nokkuð dökkt með töluvert þroskaðri og kryddaðri angan, plómur, krækiber, sviðinn viður, í munni er vínið ágætlega ferskt, með lifandi sýru. Þægilegt kjötvín, rautt kjöt en má líka alveg smella með t.d. kalkún.
2.599 krónur. Góð kaup.