Domaine de Villemajou 2012

Domaine de Villemajou er ekki bara eitt af mörgum vínhúsum Gerard Bertrand í Frakklandi, þetta er hið upphaflega vínhús fjölskyldunnar sem Gerard tók við rekstrinum á þegar að faðir hans féll frá.

Dökkrautt á lit, kröftug, höfug angan af mjög þroskuðum plómum og dökkum berjum, krækiber, bláber. Við þetta fléttast ferskar kryddjurtir, leður; vanilla og reykur úr eikinni. Þykkt og mikið, mjög þéttriðið, silkimjúk tannín. Vín fyrir nautakjöt en einnig milda villibráð á borð við hreindýr og gæs.

3.299 krónur. Frábær kaup.

Deila.