Klúbbur matreiðslumeistara stendur um þessar mundir fyrir keppninni um matreiðslumann
ársins 2015.
Keppnin í ár er haldin með nýju sniði, en nú höfðu allir faglærðir matreiðslumenn landsins
möguleika á að senda eina nafnlausa uppskrift og mynd af rétti sínum í keppnina. Eina krafan
sem gerð var til keppenda var að notaður yrði íslenskur þorskur. Tæplega tuttugu uppskriftir
bárust dómnefnd sem skipuð er Bjarna Gunnari Kristinssyni, Þránni Frey Vigfússyni, Bjarka
Hilmarssyni, Jóhannesi Jóhannessyni og Birni Braga Bragasyni, en höfuðáherslur voru lagðar
á frumleika, nýtingu hráefna, útlit og bragð rétta.
Þeir tíu matreiðslumenn sem komust áfram í undanúrslit þar sem þeir munu elda þann rétt
sem þeir sendu inn í keppnina eru:
- Ari Freyr Valdimarsson – Sjávargrillið
- Atli Erlendsson – Grillið Hótel Saga
- Axel Clausen – Fiskmarkaðurinn
- Garðar Kári Garðarsson – Strikið
- Gísli Matthías Auðunsson – Slippurinn /
- Matur og drykkur
- Hrafnkell Sigríðarson – ION Hótel
- Jónas Oddur Björnsson – 101 Hótel
- Karl Jóhann Unnarsson – Hótel Rangá
- Kristófer H. Lord – Lava Bláa Lónið
- Steinn Óskar Sigurðsson – Vodafone
Undanúrslitakeppnin fer fram á veitingastaðnum Kolabrautinni í Hörpu þann 23. febrúar á
milli klukkan 10:00 og 15:00. Úrslit verða tilkynnt klukkan 16:00 sama dag og eru allir
velkomnir að fylgjast með keppninni og hvetja þáttakendur.
Þeir fjórir keppendur sem komast áfram úr undanúrslitum munu því næst taka þátt í
lokakepninni sem haldin verður í Hörpu sunnudaginn 1. mars þar sem matreiðslumaður
ársins verður krýndur.