Gerard Bertrand Reserve Special Viognier 2013

Viognier er athyglisverð þrúga sem verður sífellt algengari í hillunum. Lengi vel voru það fyrst og fremst hvítvínin frá Condrieu í norðurhluta Rhone sem að menn tengdu við þrúguna en hún er hins vegar ræktuð hvað mest í Languedoc í Suður-Frakklandi.

Þetta vín frá Gerard Bertrand er létt, ferskt og ljúft. Í nefi hinn dæmigerða apríkósuangan Viognier í bland við ferskjur og perur, þægilega ferskt með ljúfri sýru, sumarlegt.

2.369 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.