Cepa 21 er eitt af nýju vínhúsunum í hinu magnaða spænska héraði Ribera del Duero. Það er í eigu Moro-fjölskyldunnar og er framarlega í bylgju nútímalegra Ribera-vína og er auðvitað gert úr þrúgunni Tinto Fino, sem að víða annars staðar á Spáni er nefnd Tempranillo.
Vínið er geymt á litlum eikartunnum, jafnt úr franskri sem amerískri eik, í fjórtán mánuði áður en það fer á flösku og eikin setur svip sitt á vínið án þess þó að taka völdin. Vínið ræður alveg við hana. Það er dökkt, svarblátt á lit, í nefi djúpur sólberja- og krækiberjaávöxtur, þroskaður, sætur, eikin gefur reyk, smá kókos og súkkulaði, þarna er líka smá púðursykur. Í munni er vínið mjög þykkt, feitt, en fersk tannín létta það og gefa líf. Hrikalega flott vín.
3.699 krónur. Frábær kaup á því verði sem tryggir víninu fimmtu stjörnuna.