Suður-afrísku vínin frá Drostdy Hof hafa notið mikilla vinsælda, ekki síst í þriggja lítra kössum og kassavín frá fyrirtækinu hefur til að mynda verið valið besta kassavínið á markaðnum af sænskum víntímaritum. Heitur og kryddaður ávöxtur, svolítið bjart og lifandi, krækiber og rifsber, plómur. Mjúkt og kryddað í munni, töluverð jörð og reykur.
5.799 krónur eða sem samsvarar um 1.450 krónum á 75 cl. flösku.