Bodegas Emiliana, er einn stærsti framleiðandi lífrænt tæktaðra vína í heiminum, þar á meðal Adobe-línunnar, en alls ræktar vínhúsið vínvið lífrænt á tæplega þúsund hektörum.
Árstíðirnar eru öfugsnúnar á suðurhvelinu og því erum við nú þegar farin að sjá vín úr 2014 uppskerunni, sem var síðastliðið vor. Þetta er skarpt, ferskt hvítvín með svolítið sætum ávexti, þroskaður sítrus, límóna, greip og suðrænir ávextir, ferskt og þægilegt í munni. Hvítvín fyrir pallinn ef sumarið kemur.
1.999 krónur. Mjög góð kaup.