Bodegas Munoz er vínhús á spænsku hásléttunni og þetta rauðvín úr Garnacha-þrúgunni fellur undir svæðisskilgreininguna Vino de la Tierra de Castilla.
Rauður ávöxtur, heitur rifsberjaávöxtur, nokkuð kryddað, vanilla, mjúk og fín eik. Milt og þægilegt.Ágætis rauðvín fyrir grillmatinn, t.d. kjúkling.
1.890 krónur. Mjög góð kaup.