Guado al Tasso Vermentino 2014

Guado al Tasso er eitt af vínhúsum markgreifans Antinori. Það er staðsett í Bolgheri við vesturströnd Toskana og er þekktast fyrir rauðvínið, sem er eitt af hæst skrifuðu Súper-Toskana-vínunum. Þarna eru hins vegar líka kjöraðstæður fyrir hvítvínsþrúguna Vermentino. Hún er algeng á eyjunum Korsiku og Sardiníu en er líka ræktuð víða við vesturströnd Ítalíu, ekki síst Lígúríu (stundum undir heitinu Pigato) og í Provence í Frakklandi undir heitinu Rolle.

Fölgult á lit, skarpt, ferskt og sýrumikið í nefi, mikill sítrus, límóna og greipávöxtur, hvít blóm, míneralískt, jafnvel smá selta, hressilega ferskt og sumarlegt í munni, vín fyrir skelfisk og létta sjávarrétti. Einnig sem fordrykkur.

2.998 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.