Þótt margir tengi kannski Sauvignon Blanc við Nýja heiminn, Chile og Sauvignon Blanc, þá er þetta hennar eina sanna konungsdæmi, þorpin Sancerre og Pouilly-Fumé austast í Loire-dalnum í Frakklandi. Pascal Jolivet er einn af allra fremstu framleiðendum svæðisins, vínin hans eru alla jafna unaðsleg, fersk, lifandi og endurspegla þessa stórkostlegu þrúgu fullkomlega.
Mjög ljóst, fölgult, stíft, angan af límónuberki, melónum og ferskjum, svalt, brakandi ferskt og sýrumikið, skilur eftir sig mildan kryddkeim. Frábært skelfisksvín.
3.699 krónur. Mjög góð kaup.