Þetta lífrænt ræktaða hvítvín frá Sikiley er blanda úr tveimur þrúgum. Önnur þeirra er ein algengasta hvítvínsþrúga Sikileyjar, Grillo en hin er suður-frönsk og nefnist Viognier. Þær ná vel saman í þessu víni og mynda heillandi heild.
Í nefinu eru ferskjur og sultaðar sítrónur, ávöxturinn er sætur og feitur, ágætis ferskleiki, kryddbit í lokin. Fínasta vín.
2.350 krónur. Góð kaup.