Adobe Cabernet Sauvignon Reserva 2014

Adobe eru lífrænt ræktuð vín frá vínhúsinu Santa Emiliana í Chile, einum stærsta framleiðanda lífrænt ræktaðra vína í heiminum. Hér kíkjum við á Reserva-vínið úr þrúgunni Cabernet Sauvignon.

Bjartur og léttkryddaður sólberjaávöxtur, bláber mild kaffibaunangan í nefi, mjúkt í munni, þægilegt, mjúk tannín.

1.999 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.