Chateau Lamothe-Vincent á Entre-deux-Mers svæðinu í Bordeaux er vínhús sem sendir frá sér traust og fín vín, hvít og rauð ár eftir ár. Í rauðvíninu Héritage er Merlot um 80% blöndunnar en afgangurinn Cabernet Sauvignon.
Nokkuð dökkt á lit, út í fjólublátt, þarna eru dökk ber, sólber og bláber, eikin gefur krydd og vott af vanillu, vínið hefur ágætis þykkt, tannín er mjúk og þægileg. Dæmigert og fínt Bordeaux fyrir lítinn pening. Með t.d. andarbringum eða ostum.
2.799 krónur. Mjög góð kaup.