Pujol-fjölskyldan hefur stundað vínrækt í Languedoc-Roussillon í Suður-Frakklandi frá árinu 1785 og um all nokkurt skeið hefur öll framleiðsla hússins verið lífrænt ræktuð.
La Montadella er einnar ekru vín, blanda úr Syrah, Mourvédre og Carignan. Ávöxtur í nefi heitur, nokkuð þroskaður, vínið töluvert kryddað, þarna er mikil sveit og fjós. Mjúkur, sætur ávöxtur í munni, sveit og mjúk tannín.
2.890 krónur. Góð kaup.