Chateau de Tracy Pouilly-Fumé 2012

Chateau de Tracy er vínhús í hjarta Frakklands með langa og mikla sögu. Rekja má sögu víngerðarinnar aftur til fjórtándu aldar en það er greifinn af d’Estutt d’Assay sem nú hefur aðsetur í þessu tignarlega chateau-i.

Græn ber og ávextir í nefi, stikilsber, lyché, límóna, í munni kraftmikið, skarpt og sítrusmikið, þarna eru steinefni og vínið hefur góða þyngt. Virkilega flott vín.

4.240 krónur. Frábær kaup.

Deila.