Barone Pizzini Brut Nature 2010

Franciacorta er það hérað sem helst er horft til þegar að vönduð ítölsk freyðivín eru annars vegar og meðal þeirra framleiðenda sem þar eru á toppnum er lífræna vínhúsið Barone Pizzini.

Brut Nature er nokkurn veginn eins þurrt og freyðivín verða. Það freyðir vel, með þéttum, fínum bólum. Í nefi möndlur, blóm, smá þurrkaðir ávextir, mjög, mjög þurrt, töluvert um sig. Virkilega flott freyðivín. Kampavíns-ígildi.

4.990 krónur. Frábær kaup.

Deila.