Capoccia Rosso 2013

Capoccia er lífrænt ræktað rauðvín frá sikileyska vínhúsinu Feudi di Santa Tresa, blanda úr sikileysku þrúgunni Nero d’Avola og hinni frönsku Cabernet Sauvignon.

Dökkt, fjólublátt á lit, mjög þroskaður, heitur, þungur og dökkur ávöxtur, hefur sjarmerandi grófleika, sveitalegt, töluvert kryddað, reykur. Kraftmikið. Með pottréttum, pastaréttum þar sem tómatar eru í sósunni og bragðmiklir ostar.

2.495 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.