Vette di San Leonardo Sauvignon Blanc

Tenuta San Leonardo í Trentino er eitt af bestu vínhúsum ekki bara héraðsins heldur norðurhluta Ítalíu. Það er þekktast fyrir vín úr þrúgum Bordeaux en þetta hvítvín úr hinni frönsku þrúgu Sauvignon Blanc sýnir að þeim tekst ekki síður vel upp með hvítu vínin.

90%
Frábær kaup

Angan er opin, ágeng og aðlaðandi, grösug með áberandi ástaraldin. Mjög ferskt í munni, þurrt með flottri sýru, þéttriðið. Magnað vín.

Verð: 2.690 krónur.

  • vinotek.is
    9
Deila.