Palacios Remondo La Vendimia 2013

Alvario Palacios er einn þekktasti víngerðarmaður Spánar. Hann er einn af þeim sem að endurvöktu svæðið Priorat og þaðan kemur nú eitt af tveimur eftirsóttustu vínum Spánar, L’Ermita. Palacios-fjölskyldan kemur hins vegar frá Rioja og þar stofnaði faðir Alvario vínhúsið Palacios Remondo.

90%
Frábær kaup

La Vendimia er eitt af vínunum sem Alvaro gerir í  Palacios Remondo, ungt vín, blanda úr Tempranillo og Garnacha. Dökkt, kröftugur, kryddaður skógarberjaávöxtur, kirsuber, haustlauf. Í munni fersk, fínleg sýra, mild tannín, kryddað með lakkrís í lokin.

Verð: 2.490 krónur.

  • vinotek.is
    9
Deila.