A Mano Bianco 2014

A Mano BiancoA Mano hefur lengi verið í miklu uppáhaldi enda eru þetta vín sem þau hjónin Marc og Elvi leggja í líf sitt og sál. Hvítvínið þeirra tekur all nokkrum breytingum með 2014 árganginn því að nú er Fiano þrúgan ekki lengur blönduð þrúgunni Greco heldur annarri yndislegri suður-ítalskri þrúgu, Falanghina, sem algengara er að sjá í Kampaníu en Púglía.

Vínið er gullið á lit og bjart að upplagi, ferskur, þroskaðar ferskjur, melónur og apríkósur, smá kryddbit, þykkt, feitt í munni með ferskri sýru sem sker í gegn og gefur léttleika. Yndislegt.

1.999 krónur. Frábær kaup.

80%
Frábær kaup
  • vinotek.is
    8
Deila.