Nouveau-ið er komið

Rétt eins og lóan markar vorkomuna þá veit maður að aðventan er að nálgast þegar að Beaujolais Nouveau birtist þriðja fimmtudag nóvembermánaðar. Þó svo að sami tryllingurinn einkenni ekki komu Nouveau-vínanna og hér áður fyrr þá er alltaf ákveðin stemmning að dreypa á þessum fyrstu dropum nýju uppskerunnar.

Við smökkuðum Beaujolais Nouveau frá Georges Duboeuf og það verður bara að segjast eins og er að þetta er bara ansi sprækt vín. Ávöxturinn er rauður og berjamikill en hann er líka þykkur, safamikill og hefur prýðilega dýpt fyrir Nouveau. Skýringin er hitabylgja yfir sumarið og miklir þurrkar sem að keyrðu upp sykurinn og bragðið í þrúgunum. Það eru jafnvel dæmi um Nouveau-vín þetta árið sem að fara yfir 14% í áfengi. Það þarf víst að leita aftur til ársins 1947 til að finna jafn „mikil“ Nouveau-vín.

Verðið þetta árið er 2.468 krónur.

Deila.