Vicar’s Choice Pinot Gris 2014

vicar's choiceNýja-Sjáland kann að vera þekktast fyrir Sauvignon Blanc en þar er líka hægt að rækta margar aðrar norður-evrópskar þrúgur með góðum árangri. Pinot Gris er ein þeirra og það að hið franska heiti hennar er notað en ekki hið ítalska (Pinot Grigio) gefur réttilega til kynna að meira sótt í stílnum til Alsace en Ítalíu.

Sæt ferskju, peru  og lime-angan, sætur sítrus áfram í munni, fennel, smá beiskja í lokin. Virkilega þægilegt og gott vín.

80%

2.499 krónur. Mjög góð kaup.

  • 8
Deila.