Limari er eitt af nýrri víngerðarsvæðum Chile og eitt af þeim svæðum sem strax getur verið skynsamlegt að leggja á minnið. Það er um 400 kílómetra norður af Santiago og þó svo að haldið sé í norður, nær miðbaug, er loftslagið svalara og þurrara en á svæðunum nær höfuðborginni. Kjöraðstæður fyrir norður-evrópskar þrúgur.
Þetta er fyrsta hvítvínið frá Maycas del Limari sem hingað ratar, árgangurinn er 2009 en það er enn ungt og yndistlegt. Vanilla er áberandi, mikill hitabeltisávötur í nefi, ástaraldin, ananas. Þétt, mikið vín.
90%
2.799 krónur. Frábær kaup.
-
9