Domaine de Malandes er meðalstórt (á mælikvarða svæðisins) vínhús í Chablis undir stjórn kvenskörungsins Lyne Marchive. Vau de Vey er ein af „Premier Cru“-ekrunum í Chablis, þetta er austurhlíð með mjög kalkríkum jarðvegi, ein sú brattasta af Chablis-ekrunum.
Sætur sítrus, sítrónubörkur, greip, í munni míneralískt, með straumlínulöguðum, fókuseruðum ávexti, Þurrt með ferskri, fínni sýru.
90%
3.999 krónur. Frábær kaup, yndislegt matarvín með bestu sjávarréttunum.
-
9