Chateau l‘Hospitalet er eitt af djásnunum í eignasafni Gerard Betrand. Þarna eru höfuðstöðvar hans og þarna heldur hann árlega mikla jasshátíð sem dregur til sín heimsþekkta tónlistarmenn. Landareignin er í hæðunum rétt vestur af borginni Narbonne í Languedoc og teygja ekrurnar sig þar í átt að Miðjarðarhafinu. Allt um kring eru ekrurnar umluknar klöppum (svæðið heitir meira að segja la Clape) þaktar garrigue-gróðri, villtum rósmarínrunnum og öðrum lágreystum gróðri sem að berst við að lifa af í þessu þurra og hrjóstruga umhverfi.
Líkt og á öðrum helstu vínhúsum sínum framleiðir Bertrand þrjá flokka af víni á Hospitalet. Annars vegar Chateau-vín líkt og það sem er fáanlegt hér frá Sauvageonne og Villemajou, þá „Grand Vin“ sem er vín af þrúgum af bestu runnunum og síðan ofurvín af litlum smáskika einnan eignarinnar.
Mjög dökkt á lit, þungt. Dimmt í nefi, kryddað, rósmarín,þroskuð svört ber, reykur. Heitt og kryddað en einnig með góðri sýru, dökkt, ólífur, eikin er þarna líka en ekki yfirþyrmandi.
5.399 krónur. Magnað vín, með nauti, lambi og villibráð.
-
9