Golden Reserve-línan frá Trivento í Argentínu er alveg hreint mögnuð. Stór og mikil vín, langt fyrir ofan verðmiðann. Þetta Chardonnay-vín hefur öll helstu aðalsmerki góðra Nýja-heimsvína en jafnframt svolítið norðlægan ferskleika, sem fæst með því að rækta þrúgurnar hátt yfir sjávarmáli.
Ljósgult á lit með ferskum, sætum ávexti, þarna er sítrus en ekki síður ananas, ferskjur, bananar sem fléttast saman við púðraðan vanillusykur, örlítinn brennistein og reyk úr eikinni. Kröftugt og ungt í munni, með skarpri ferskri sýru, þykkt.
80%
2.999 krónur. Flottur Chardonnay, fyrir humar og skelfisk, ræður við hvítt kjöt.
-
8