Thelma vann silfrið

Thelma Björk Hlynsdóttir vann til silfurverðlauna í keppninni Þjónn Norðurlandanna sem fram fór í Herning í Danmörku.  Thelma Björk starfar sem þjónn á veitingastaðnum Olo í Finnlandi. Það var fulltrúi Finnlands sem hreppti gullið.

Þau Denis Grbic matreiðslumaður á Grillinu á Hótel Sögu og Iðunn Sigurðardóttir matreiðslumaður á Matarkjallaranum kepptu í matreiðsluhluta keppninnar en komust ekki á pall.  Það var  fulltrúi Svíþjóðar sem var valinn Matreiðslumaður Norðurlandanna en keppandi Finnlands hlaut titilinn í flokki ungliða.

Deila.