Brown-Lamartine er “þriðja” vínið frá Chateau Cantenac-Brown, sem einnig framleiðir Brio. Það kemur af fimm hektara skika af Cantenac ekrunni sem fellur ekki undir svæðið Margaux heldur “appelation Bordeaux”. Vínið er framleitt í sömu víngerð og af sama teymi og Grand Cru-vínið og Brio, og gefur nasasjón af því hvað stærri vínin bjóða upp á.
Dökkt, litur djúpur, svarfjólublár. Í nefi sólber, krækiber, kaffi og vanilla, klassískur Bordeaux-prófíll, mild eik, svolítið kryddað, tannín mjúk, kröftug og fín. Vínið þarf góðan tíma til að opna sig, mæli með að því sé umhellt í karöflu.
2.999 krónur. Síðasti árgangur var valinn sem bestu rauðvínskaupin hjá okkur í fyrra, þessi frábæri árgangur stendur alveg undir því líka. Munið bara að gefa víninu tíma til að opna sig.
-
9