Baron de Ley Gran Reserva 2009

IMG_2005Baron de Ley er eitt af yngri vínhúsum Rioja, “einungis” rétt tæplega þrjátíu ára gamalt. Víngerðin er hins vegar í gömlu munkaklaustri syðst í héraðinu og stíll vínanna er vel heppnuð blanda af hinu klassíska og hinu nútímalega.

Djúp og krydduð angan, þarna er reykur, kaffi og túrmerik, dökkrauður ávöxtur, þroskuð kirsuiber, vínið hefur mjúka, þykka áferð, mjúk, kröftug tannín, vanillutónar.

90%

3.798 krónur. Mjög góð kaup, vín fyrir nautakjöt og lamb, gjarnan grillað.

  • 9
Deila.