Remúlaði er ekki það sama og remúlaði. Það sem við setjum út á pylsurnar okkar er ekki það sama og heimalagað danskt remúlaði sem Danir elska að nota með smurbrauðinu sínu, t.d. roastbeef og pönnusteiktri rauðsprettu. Heimalagað remúlaði breytir líka ýsunni í raspi í þessa líka fínu máltíð.
Það er leikur einn að gera ekta danskt remúlaði og það er hægt að fara ýmsar leiðir. Hér höfum við tekið saman nokkrar vinsælar danskar uppskriftir í eina. Danir nota gjarnan annað súrsað grænmeti í bland við gúrkurnar (ef þið finnið t.d. dós af „mixed pickles“) og einnig má forsjóða gulrætur og rífa fínt niður. Remúlaðið má líka gera fitusnauðara með því að skipta hluta af majonnesinu út fyrir sýrðan rjóma.
- 2 eggjarauður
- 3 dl ljós matarolía
- 1 væn tsk Dijon-sinnep
- 1 msk hvítvínsedik
- 1 tsk karrý
- 1 tsk túrmerik
- 4 dl sýrðar gúrkur, saxaðar í litla bita (eða blandað súrsað grænmeti)
- 1 tsk kapers
- 2 msk sætt danskt sinnep
- cayennepipar
- salt og pipar
Byrjið á því að gera heimalagað majonnes. Setjið eggjarauðurnar og Dijon-sinnep í matvinnsluvél og þeytið saman. Látið vélina þeyta áfram og byrjið að hella olíunni hægt og rólega saman við. Nokkra dropa í fyrstu en þegar að blandan fer að þéttast er olíunni hellt saman við í stöðugri, mjórri bunu. Hellið í lokin edikinu saman við ásamt karrý, túrmerik og loks sæta sinnepinu. Setjið í skál og blandið söxuðu sýrðu gúrkunum út í. Bragðið til með cayenne, salti og pipar. Það má líka setja teskeið eða svo af söxuðu kapers út í.