Les Meysonniers er rauðvín af AOC-svæðinu Crozes-Hermitage í Frakklandi frá einu af betri vínhúsum Rhone-dalsins, vínhúsi Chapoutier-fjölskyldunnar. Crozes-Hermitage eru ekrurnar á sléttunni fyrir neðan Hermitage-hæðina og það er Syrah-þrúgan sem hér ræður ríkjum.
Fallegur, dökkrauður og djúpur litur. Rifs og kirsuber, nokkuð létt, kryddað með smá reyk, skarpt með líflegri sýru. Enn í yngsta lagi, þyrfti helst árið í viðbót í geymslu, gott að opna og umhella.
80%
3.299 krónur. Góð kaup, vín fyrir lambakjöt með kryddjurtum á borð við rósmarín og óreganó.
-
8