Það var mikil spenna í loftinu þegar að heimsmót vínþjóna, World’s Best Sommelier-keppnin hófst á Park Hyatt hótelinu í borginni Mendoza í Argentínu á laugardag. Keppnin er haldin á þriggja ára fresti og þar koma saman keppendur sem hafa sigrað í þjóðarkeppnum sinna ríkja auk þeirra sem hafa staðið uppi sem sigurvegarar í keppnum einstakra heimsálfa. Þannig voru tveir fulltrúar frá Svþjóð mættir, Svíþjóðarmeistarinn og Evrópumeistarinn og einnig eiga heimamenn í Argentínu tvo keppendur þar sem Ameríkumeistarinn kemur þaðan.
Auk keppenda sendir hvert land sendinefnd á svæðið, forystumenn úr vínþjónasamtökum hvers lands og blaðamenn. Það eru því hundruð manna alls staðar að úr heiminum mættir til Mendoza til að fylgjast með keppninin og á meðan keppendur sitja sveittir yfir prófunum gefst öðrum færi á að heimsækja mörg af bestu vínhúsum Argentínu sem tjalda öllu sínu besta til í tilefni heimsmótsins.
Keppnin hófst á blindsmökkun þar sem að keppendurnir 61 höfðu tvö vín í glösum fyrir framan sig. Annað rautt og hitt hvítt. Þeir fengu tuttugu mínútur til að meta vínin, lýsa þeim í þaula, færa rök fyrir hvaða vín þetta væru, hvaðan þau kæmu og rökstyðja niðurstöðuna. Þá komu næst fjórir spírar þar sem verkefnið var að segja til um hvers konar drykkur þetta væri og frá hvaða framleiðanda. Að auki var lagt fyrir keppendur þungt skriflegt próf og í lokin beið þeirra verklegt próf, að bera fram kampavín fyrir gesti þar sem ýmsar óvæntar þrautir gátu reynst á leiðinni.
Fimmtán keppendur komust í undanúrslit sem fram fara í dag, þar á meðal Svíarnir tveir, fulltrúar Danmerkur, Finnlands, Noregs, Frakklands, Japan, Argentínu, Suður-Afríku, Lettlands, Rússlands, Póllands, Kanada og Írlands.


