Manor House mætti þýða sem óðalssetur og setrið sem þetta vín er kennt við, óðalssetur Nederburg í Stellenbosch hefur um aldabil verið í lykilhlutverki í víngerð Suður-Afríku.
Þetta er nýjaheims-Sauvignon Blanc út í gegn. Ávöxturinn er suðrænn og sætur, þroskaðar melónur og ferskjur, greipaldin og ástaraldin en einnig nýslegið gras og jurtir, sem eru þó í aukahlutverki gagnvart ávextinum. Mýktin ræður ríkjum í munni, langur, sætur ávöxtur en nægileg sýra til að viðhalda góðum og flottum ferskleika.
80%
2.499 krónur. Frábær kaup. Ekta vín til að sötra á pallinum í sumarsólinni eða bjóða fram með réttum með smá asísku ívafi í bragðinu.
-
8