Finca Resalso 2014

IMG_1359Víngerðarsvæðið Ribera del Duero er í hugum margra það svæði þar sem Tempranillo-þrúgan spænska nær hvað mestum hæðum. Það er þó ekki sanngjarnt að gera upp á milli Ribera og Rioja, enda stíll svæðanna nokkuð ólíkur. Og sem betur fer eru það ekki bara stór og dýr vín sem þaðan eru fáanleg það má líka fá ansi stór og ódýr vín frá bestu vínhúsunum. Resalso er yngsta vínið úr smiðju Emilio Moro, vínviðurinn er aðeins yngri en í stóru vínunum og vínið er geymt skemur á tunnu áður en það fer á flösku.

Resalso er þó alla jafna eitt af þeim rauðvínum sem hér eru fáanleg sem gefur hvað mest fyrir peninginn. Mjög dökkur litur, kröftugur, svartur og rauður, þarna eru sólber og bláber, smá kirsuer, ávöxturinn hreinn, sætur berjasafi, allt að því sultaður, sem að krydd úr eikinni fléttast saman við. Í munni er það stórt og kraftmikið, eins og Ribera á að vera, en tannínin eru mjúk og áferðin sömuleiðis.

80%

2.499 krónur. Frábær kaup. Með grilluðu kjöti, þolir vel kröftuga kryddlegi.

  • 8
Deila.