Allegrini Soave 2014

IMG_1431Allegrini-fjölskyldan er með betri vínframleiðendum í Valpolicella í Verona-héraðinu á Ítalíu og hún gerir líka vín frá öðrum svæðum, m.a. nágrannasvæðinu Soave. Vínið hefur nokkuð gullin lit, farið að sýna smá þroska enda 2014 hér á ferð. Sætar ferskjur, apríkósur, blóm og hunang í nefi. Vínið er óeikað og ávöxturinn er fínn og ferskur í munni en farinn að sýna þroskaðri tóna.

70%

2.019 krónur. Góð kaup. Með grilluðum laxi og silungi.

  • 7
Deila.