Gran Devocion-línan frá Vina Maipo í Chile hefur áður vakið athygli okkar, þetta eru gífurlega flott vín sem maður er að fá þarna fyrir tiltölulega lítinn pening. Hér er á ferð skemmtileg blanda úr þrúgunum Carmenere og Syrah, ekki algeng blanda en kemur mjög vel út hér. Vínið er dökkt, það má byrja að greina byrjandi þroska, dökkt súkkulaði í bland við sólber, bláber og tóbakslauf, eikin er fyrirferðarmikil en tekur aldrei völdin, vínið er langt, mikið, tannín kröftug og mjúk. Svakalega flott vín.
90%
2.599 krónur. Frábær kaup, frábært grillvín.
-
9