Finca Las Moras Chardonnay 2015

IMG_1231Flest argentínsku vínhúsin sem að hér eru fáanleg eru með vínrækt sína í héraðinu Mendoza. Sem kemur í sjálfu sér ekki á óvart í ljósi þess að um 90% af allri vínrækt í Argentínu fer fram þar. Las Moras er hins vegar eitt af vínhúsunum í héraðinu San Juan sem er staðsett norður af Mendoza.

Það er i sjálfu sér ekkert sem kemur hér á óvart, þetta er vel gerður og pottþéttur argentínskur chardonnay, gul epli og suðrænir ávextir, ferskjur og ananas í nefi, sítrus, ferskt og sýruríkt, ferskur og fínn ávöxtur.

70%

1.799 krónur. Mjög góð kaup.

  • 7
Deila.