Það er oft alveg hreint magnað hvað Chile tekst að gera neysluvæn og fín vín fyrir lítinn sem engan pening. Hér er Chardonnay sem kostar innan við sextán hundruð krónur og er bara í fínu lagi. Suðrænn ávöxtur er ríkjandi í nefi, þarna er ananas og gul og rauð epli, ávöxturinn í munni sætur og þægilegur, ágætlega ferskur og tær.
60%
1.599 krónur. Mjög góð kaup.
-
6