Rolland & Gallareta eru vín sem að einn þekktasti víngerðarmaður heims, Frakkinn Michel Rolland, framleiðir í samvinnu við spænsk vínhús í Rioja, Ribera og Rueda. Þrúgurnar í Rioja-vínið koma að mestu frá Bodegas Labastida í Rioja Alavesa.
Þetta er massívt og þétt Rioja-vín. Dökkur og djúpur litur, krydduð angan, kaffi, kókos, jörð og reykur sem fléttast saman við dökkan berjaávöxt. Strúktúrerað, þurrt, elegant í uppbyggingu með þéttum tannínum. ,
90%
2.890 krónur. Frábær kaup.
-
9