Vínstílinn Amarone frá Valpolicella-héraðinu er einstakur og Amarone-vínin meðal bestu rauðvína Ítalíu. Amarone-vín eru gerð úr þrúgum sem eru þurrkaðar eftir tínslu og vínin eru mikil um sig, hafa oft svolítið „sætt“ yfirbragð í nefi en ekta Amarone-vín eru engu að síður þurr í munni. Allegrini er eitt af bestu vínhúsum svæðisins og hefur verið leiðandi í víngerð þar frá því á sautjándu öld. Vínhúsið var valið vínhús ársins á Ítalíu í 2016-útgáfu ítölsku vínbiblíunnar Gambero Rosso.
Amarone 2011 er skólabókardæmi um gott Amarone, sætur sedrusviður ofinn saman við sæt, þurrkuð dökk ber, vottur af lakkrís, kaffi og smá „sérrí“-angan. Mikið um sig, þykkt, voldugt og flauelsmjúkt, mjög langt.
7.990 krónur. Frábær kaup. Með grilluðu bragðmiklu kjöti, með osso buco og auðvitað með villibráð.
-
10