Pata Negra Verdejo-Sauvignon Blanc 2015 BIB

IMG_1330Verdejo er spænsk hvítvínsþrúga sem hefur notið sívaxandi athygli á síðustu árum fyrir  grösugan ferskleika sinn og þokka. Henni er oft líkt við Sauvignon Blanc og því við hæfi að í þessu víni skuli þeim þrúgum vera blandað saman. Pata Negra er eitt af vörumerkjunum sem vínhúsið Garcia Garrion, sem er miðal risanna á Spáni, framleiðir vín undir og má finna Pata Negra vín frá nokkrum héruðum. Vín sem mörg hver hafa vakið töluverða athygli fyrir að endurspegla einkenni hvers héraðs ansi hreint vel. Þetta kassavín er þar engin undanteknin og býður rétt eins og rauða kassavínið frá Pata Negra upp á einstaklega flott hlutfall verðs og gæða.

Vínið er ljóst með grænum tónum, í nefi hvít blóm, sítróna, gul epli og perur. Grösugt, ferskt og með hreinleika og karakter sem er óvenjulegt að finna í kassavínum.

80%

5.999 krónur fyrir kassann eða rétt um 1.500 krónur miðað við 75 cl. flösku. Frábær kaup á því verði og fær fjórar stjörnur fyrir hlutfall verðs og gæða í flokki kassavína.

  • 8
Deila.