Warpigs takeover á Mikkeller & Friends á föstudaginn

Eftir tíðinda lítið sumar virðist rigna inn skemmtilegum viðburðum á börum bæjarins. Föstudaginn 12. ágúst verður Mikkeller & Friends á efri hæð Hverfisgötu 12 breytt í útstöð frá Warpigs brugghúsinu í Kaupmannahöfn.

Þessi viðburður er af stærri gerðinni og mun rokktónlist hljóma, reykt kjöt flæða og bjórinn buna frá opnun staðarins kl 14:00. Warpigs brugghúsið hefur verið gríðarlega vinsælt frá því að það opnaði í fyrra í kjötiðnaðar hverfinu á Vesterbro í Kaupmannahöfn. Brugghúsið er samvinnu verkefni Mikkeller og Three Floyds í Munster í Indiana en Three Floyds hefur verið eitt allra eftirsóttasta brugghús Bandaríkjanna um árabil. Tilgangur staðarins var að færa bandaríska BBQ menningu til Evrópu og einnig brugga bragðmikla bjóra á staðnum sem hægt væri að bera fram eins ferska og möguleiki væri á.

Í boði á Mikkeller & Friends verður mikil humlaveisla og verða IPA bjórar í meirihluta en alls verða 12 bjórar frá Warpigs á krana:

Warpigs: Booty Call
Warpigs: Lazurite
Warpigs: Real Estate Mongol
Warpigs: Reptilian Overlord
Warpigs: Tongue Worshipper
Warpigs: Kylesberg
Warpigs: Hard Ass Hadrada
Warpigs: Power Move
Warpigs: Svajer Bajer
Warpigs: Moonbase of Filth
Warpigs: Stack of Lies
Warpigs: Iron Dice

Takmarkað magn verður einnig af gómsætum kjötréttum.

Þessi vika er því mikil veisla í Reykjavík þar sem þessi viðburður bætist ofan á frábæran viðburð Cigar City Brewing í kvöld.

Deila.